Vel heppnað skáknámskeið í Nýung

Um nýliðna helgi var haldið skáknámskeið í félagsmiðstöðinni Nýung fyrir grunnskólakrakka á Fljótsdalshéraði.

Námskeiðið var virkilega vel sótt og vel heppnað. Kennari var Birkir Karl Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Ástralíu og Íslands í skák, en Birkir Karl hefur áður komið austur og haldið námskeið fyrir skákunnendur á Héraði.

Þátttakendur í námskeiðinu voru á öllum aldri og voru mislangt komin í skákinni.

Má með sanni segja að námskeiðið hafi verið afar vel heppnað og í lok námskeiðsins var haldið skákmót þar sem kom bersýnilega í ljós hversu hratt krakkarnir höfðu bætt sig á aðeins einum sólarhring.