Varalið ræst út í Útsvar

Vegna veðurs komast tveir úr liði Héraðsbúa ekki til keppni í Útsvari í kvöld, þeir Þórhallur Pálsson arkitekt og Þórður Mar Þorsteinsson. Því hafa verið kallaðir til leiks Sveinn Birkir Björnsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, og Ragnar Sigurmundsson endurskoðandi.

Vonir standa til að Hrafnkatla Eiríksdóttir komist til keppni en hún stundar nám á Hvanneyri. Þátturinn er í beinni útsendingu, hefst klukkan 20.30 og andstæðingarnir eru frá Reykjanesbæ.