Útsvar: Fljótsdalshérað í úrslit

Lið Fljótsdalshéraðs sigraði lið Fjarðabyggðar í Útsvari í kvöld 81-66, eftir æsispennandi keppni þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu spurningunum. Þetta var seinna undanúrslitakvöld keppninnar og því ljóst að það verða Fljótsdalshérað og Reykjavík sem mætast í úrslitun þann 20. maí.

Til hamingju með sigurinn Björg, Hrólfur og Þorsteinn!