Lið Fljótsdalshéraðs er komið í sextán liða úrslit í Útsvari með sigri á liði Rangárþings ytra í kvöld. Lið Héraðsmanna fékk 66 stig gegn 62 stigum Rangárþings ytra. Lið Fljótsdalshéraðs skipuðu Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Ingvar Skúlason og hinn gamalreyndi keppandi Þorsteinn Bergsson sem var kallaður inn í liðið fyrir þremur dögum síðan.
Ef að sú sem þetta skrifar hefur tekið rétt eftir kemur lið Fljótsdalshéraðs til að keppa á móti handhöfum Ómarsbjöllunnar, Fjarðabyggð, í 16 liða úrslitunum.
Lið Rangárþings ytra skipuðu Bæring Jón Breiðfjörð Guðmundsson, Fjóla Kristín B Blandon og Sigurjón Bjarni Sigurjónsson.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.