- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Þann 26. maí s.l. luku fyrstu nemar Forvarnarskólans, utan Reykjavíkur, námi með formlegri útskrift sem fór fram í fundarsal bæjarstjórnar á Fljótsdalshéraði. Sex nemendur voru útskrifaðir, 4 þeirra hafa bein tengsl við sveitarfélagið Fljótsdalshérað, annars vegar starfsmenn frá félagsþjónustu, fræðslusviði og félagsmiðstöðvunum auk þess sem fulltrúi í fræðslunefnd var í hópnum.
Forvarnarskólinn er önnur námsleið af tveimur sem Ráðgjafarskóli Íslands býður upp á. Skólinn hefur starfað í Reykjavík um nokkurra ára skeið, en starfsemin á Egilsstöðum nú á vorönn 2009 er í fyrsta sinn sem farið er með starfið út á land. Mikil ánægja var meðal nemenda sem útskrifuðust með það að fá tækifæri til að stunda nám í skólanum á heimavelli.
Þeir sem tóku þátt í starfi Forvarnarskólans og hafa bein tengsl við Fljótsdalshérað notuðu þetta tækifæri til að vinna markvisst undir handleiðslu Árna Einarssonar, skólastjóra Forvarnarskólans, að mótun forvarnarstefnu sveitarfélagsins og einstaklingsbundin lokaverkefni hvers og eins voru skipulögð þannig, að þau eru í meginatriðum framsetning markmiða með skilgreindri aðgerðaáætlun í völdum þáttum forvarnarstefnu sveitarfélagsins. Þannig fjallaði eitt verkefnið um vímuvarnarþáttinn, annað um einelti, þriðja um lýðheilsumál o.s.frv. Nú þegar skólanum er lokið er framundan að fella þessi verkefni saman og leggja síðan fram heildstæða stefnu sveitarfélagsins í forvörnum.
Með þessum hætti fékkst tækifæri til að tryggja vandaða og faglega vinnu við gerð forvarnaráætlunar. Mörg dæmi eru um að valið sé að kaupa þjónustu sérfræðinga til að hrinda líkum verkefnum í framkvæmd, raunin er þá að ráðgjafinn kemur að og aðstoðar við verkefnið, fer síðan og með honum þekkingin og færnin. Með þeim hætti sem hér hefur verið farin verður aukin fagmennska og þekking eftir í því samfélagi þar sem vinnan er unnin, en hverfur ekki á braut með góðum ráðgjafa þegar verkefni er lokið.