Útboð -Stofnlagnir á Egilsstaðanesi

Hitaveita Egilsstaða og Fella óskar eftir tilboðum í verkið STOFNLAGNIR Á EGILSSTAÐANESI.

Verkið felst í lagningu 1300 m langra stofnlagna fyrir heitt og kalt vatn og ljósleiðara um Egilsstaðanes meðfram hringvegi 1. Hitaveitupípan er 250 mm einangruð stállögn í 450 mm plastkápu. Vatnveitulögn er 180 mm PEH.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Egilsstaða og Fella við Einhleyping 1, 700 Egilsstöðum, frá og með mánudegi 20. apríl 2015, eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar á heimasíðu HEF www.hef.is

Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. maí 2015 kl. 14:00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.