- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Fljótsdalshérað, fyrir hönd Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Fljótsdalshrepps auglýsir eftir tilboðum í verkið:
Sorphirða á Héraði og Seyðisfirði
Sorphirða, rekstur móttökustöðva, gámaleiga, endurvinnsla, meðhöndlun lífræns úrgangs og flutningar
Verkið felst í allri almennri sorphirðu við heimili í sveitarfélögunum Fljótsdalshéraði, Seyðisfirði og Fljótsdalshrepp ásamt rekstri móttökustöðva, gámaleigu, meðhöndlun lífræns úrgangs og ráðstöfun endurvinnsluúrgangs.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, frá og með 24. september 2015. Einnig er hægt að senda beiðni á netfangið agustm@mannvit.is og fá gögnin send á stafrænu formi.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12 , Egilsstöðum fimmtudaginn 15. október 2015 fyrir kl 14:00, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
F.h. verkkaupa
Mannvit
Verkfræðistofa