Upptaka af ráðstefnunni Auðlindir og atvinnumál á vefnum

Ráðstefnan Auðlindir og atvinnumál var haldin á vegum Fljótsdalshéraðs, í Valaskjálf þann 12. maí 2016 . Erindin sem flutt voru á ráðstefnunni, sem og pallborðsumræður, voru tekin upp og er nú hægt að nálgast í mynd og með hljóði hér: Auðlindir og atvinnusköpun.

Á ráðstefnunni var athyglinni beint að tækifærum svæðisins og horft fram á við með almennum og sértækum hætti. Fyrirlesarar voru frá atvinnulífinu, stoðstofnunum og samtökum þess auk þess sem tveir ráðherrar tóku þátt í ráðstefnunni. Að loknum framsögum voru umræður.

Dagskrá ráðstefnunnar var þessi:
- Sigrún Blöndal, forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs / Setning
- Guðmundur Sveinsson Kröyer, formaður atvinnu- og menningarnefndar / Sveitarfélagið mitt
- Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra / Ávarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins / Öflugur iðnaður – gott líf
- Ívar Ingimarsson, ferðaþjónustuaðili / Draumalandið Austurland
- Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði / Gömul gildi í nýjum búningi
- Eymundur Magnússon, frumkvöðull og eigandi Móður Jarðar ehf á Vallanesi / Lífræn ræktun í 30 ár
- Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra / Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar / Fjölbreytt tækifæri fyrir íslenska orku
- Garðar Eyjólfsson, vöruhönnuður og fagstjóri við Listaháskóla Íslands / Maður, náttúra, rannsóknir og miðlun
- Arnar Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá fjárfestingarsviði Íslandsstofu / Bein erlend fjárfesting og hlutverk landshluta