Að þessu sinni mun sveitarfélagið Fljótsdalshérað einungis senda út útprentaða álagningarseðla vegna fasteignagjalda 2015 til greiðenda 67 ára og eldri og lögaðila.
Álagningarseðlana verður hins vegar hægt að sjá í íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins, hafi fólk skráð sig þar og eigi virkt lykilorð.
Einnig er hægt að skoða álagningarseðlana á vefnum Ísland.is , en þá þarf að hafa annað hvort íslykilinn eða rafræn skilríki (virkjað debetkort, eða virkjað skilríki í GSM síma) Álagningarseðlana er þar að finna undir Mínar síður Pósthólf.
Áfram verður hægt að fá útprentaðan álagningarseðil á bæjarskrifstofum Fljótsdalshérað, í þeim tilfellum sem greiðendur geta ekki nálgast þá á framangreindan hátt.
Greiðsluseðlar fasteignagjaldanna munu eins og áður birtast í heimabönkum, eða verða sendir út til þeirra greiðenda sem hafa óskað sérstaklega eftir að fá þá útprentaða.
Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.