Unnsteinn og Halldór fyrstir í mark í Tour de Ormurinn

Norðlendingarnir Unnsteinn Jónsson og Halldór G. Halldórsson komu fyrstir í mark í sitt hvorri vegalengdinni í Tour de Ormurinn sem haldin var í fyrsta skipti í gær. Keppendur voru ræstir úr Hallormsstað klukkan níu árdegis og hjólað út í Egilsstaði, norður yfir Lagarfljótsbrú í Fellabæ og upp Fell og Fljótsdal. Við Hengifoss skyldu leiðir, þeir sem skráðir voru til leiks í 68 km vegalengd héldu þar austur yfir Jökulsá í Fljótsdal og í markið í Hallormsstað en þeir sem hjóluðu 103 km fóru alveg innst í Fljótsdal og yfir aðra brú ár.

Fyrstur í mark í styttri vegalengdinni var Halldór G. Halldórsson á tímanum 2:34,31 klst. Unnsteinn Sigurgeirsson varð annar og Rögnvaldur Snorrason þriðji. Tæp mínúta skyldi þá að.

Lonneke Gastel varð fremst í kvennaflokki á tímanum 2:59,22 klst. Aðalsteinn Þórhallsson, Gyða Guttormsdóttir og Óli Grétar Metúsalemsson mynduðu sigurliðið í liðakeppninni á tímanum 3:14,05 klst.

Unnsteinn Jónsson var fljótastur lengri hringinn, 4:02,31 klst., Valdemar Valdemarsson kom annar í mark og Freyr Ævarsson þriðji.

Þrír fremstu í styttri hringnum og tveir fremstu í lengri hringnum æfa allir með Team Bjargi sem er hjólahópur með aðsetur á Akureyri. Þaðan lagði hópurinn af stað klukkan hálf fimm á sunnudagsmorgni til að ná í keppnina.

Þetta er í fyrsta sinn sem keppnin er haldin en að henni standa Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA), ferðaþjónustufyrirtækið Austurför og sveitarfélagið Fljótsdalshérað. Nánari upplýsingar um keppnina og myndir eru á www.uia.is.