UMFÍ heldur ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði á Egilsstöðum dagana 20. 22. mars. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni verður þátttaka ungs fólk í skipulagsmálum sveitarfélaga. 60 manns hafa skráð sig til þátttöku, bæði ungmenni sem starfa í ungmennaráðum víðsvegar um landið og starfsmenn sem sjá um málefni ungmenna í sínu sveitafélagi.
Ungmenna- og Íþróttasamband Austurlands er gestgjafi ráðstefunnar að þessu sinni og kemur að undirbúning hennar í samstafi við Fljótsdalshérað.
Fyrirlesarar verða Katrín Karlsdóttir, M.Sc. í skipulagsverkfræði og umhverfissálarfræði, og Umboðsmaður barna, Margrét María Sigurðardóttir. Katrín hefur unnið mikið með þátttöku ungs fólks í skipulagsmálum og lýðræði þeirra og tengt inn í sitt nám. Umboðsmaður barna er mikilvægur hlekkur í lýðræðisumræðunni og tengir sitt erindi við þátttöku ungs fólks í skipulagsmálum.
Þátttakendur vinna í vinnustofum með þema ráðstefnunnar á meðan henni stendur og kynna niðurstöður sínar þann 22. mars klukkan 13 í hátíðarsal Hótel Valaskjálf. Kynning á niðurstöðum verður opin og allir sem áhuga hafa eru boðnir velkomnir.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.