- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Þá var á fundi ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs fjallað um félagsmiðstöðvarnar Nýung og Afrek og hvatti ráðið ungt fólk til að taka þátt í starfi félagsmiðstöðvanna og minnir á að bæði Nýung og Afrek eru opnar fyrir nemendur í öllum grunnskólum sveitarfélagsins. Þá er einnig opið í Sláturhúsinu fyrir grunnskólanemendur, sem og aldurshópinn 16-20 ára", eins og segir í fundargerð ráðsins. Því var einnig beint til forstöðumanns félagsmiðstöðvanna að kanna kostnað og möguleika á skipulagi og fjármögnun ferðar á Samfésmót svo nemendur úr grunnskólum á Fljótsdalshéraði geti farið á það.
Aðgangur að íþróttamiðstöðinni var einnig til umræðu og aðgangur yngra fólks
að líkamsræktarstöðvum, opnunartími sundlaugar og aðgangur íþróttafólks í afreksþjálfun
að líkamsræktarstöð". Þess var síðan óskað að forstöðumaður íþróttamiðstöðvar komi á næsta fund ungmennaráðs til að fara yfir ofangreind mál.
Að lokum hvatti ungmennaráð nefndir sveitarfélagsins til að vísa málum sem varða ungt fólk í sveitarfélaginu til umsagnar hjá ungmennaráði. Gert er ráð fyrir því í samþykktum ungmennaráðs að ráðið hafi þetta hlutverk enda er það í góðu samræmi við eðlilegt lýðræðislegt ferli. Ungmennaráð minnir á að engar ákvarðanir um okkur eiga að vera teknar án okkar," eins og segir í bókun ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs.
Fundargerð ungmennaráðs má sjá hér