Þriðjudaginn 16. júní var haldinn 100. fundur bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs. Fyrst á dagskrá var sameiginlegur árlegur fundur ungmennaráðs og bæjarstjórnar. Kosið er í ungmennaráðið í upphafi skólaárs, ár hvert, og því var þetta síðasti fundur ráðsins sem tók til starfa síðast liðið haust.
Í fundargerð bæjarstjórnar kemur fram að fulltrúar ungmennaráðsins gerðu grein fyrir niðurstöðum ungmennaþings sem haldið var í vetur. Á fundinum var farið yfir þá liði sem voru til umfjöllunar á þinginu og áhersluatriðum komið á framfæri við bæjarstjórn. Áfengisdrykkja unglinga á Fljótsdalshéraði var nokkuð rædd og aðgegni þeirra að áfengi og vímuefnum. Í máli ungmennaráðsfulltrúa kom einnig fram að þeim fyndist vanta meira starf á sviði forvarna og að þeim væri beint í aðrar áttir en nú er. Þá kom fram hjá fulltrúum ungmennaráðsins að þeir óskuðu eftir fleiri dansleikjum fyrir 14 ára unglinga á vegum félagsmiðstöðvanna. Atvinna fyrir ungt fólk var þeim einnig hugleikin og kostnaður unglinga við íþróttir og tómstundir. Loks var fjallað um íþróttastarf og aðstöðu til íþróttaiðkunar og þátttöku ungmenna í skipulögðum viðburðum. Meðal annars lögðu ungmennaráðsfulltrúarnir til að ávextir og Bústbar væru í boði í Íþróttamiðstöðinni í staðinn fyrir það sælgæti og ís sem nú er hægt að nálgast þar.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.