Umhverfissvið Fljótsdalshéraðs flutt á Lyngás 12

Umhverfissvið Fljótsdalshéraðs flutti skrifstofur sínar frá Einhleypingi 1 í Fellabæ yfir á bæjarskrifstofurnar að Lyngási 12 á föstudaginn var eða 25. febrúar 2012. Ómar Þröstur Björgólfsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, Úlfar Trausti Þórðarson framkvæmda- og þjónustufulltrúi, Freyr Ævarsson, verkefnisstjóri umhverfismála, og Anna Bragadóttir þjónustufulltrúi eru nú komin með starfsstöðvar sínar á Lyngás 12 og þar með eru starfsmenn allra sviða komnir með skrifstofuaðstöðu á sama stað.

Skrifstofur Hitaveitu Egilsstaða og Fella verða þó áfram að Einhleypingi 1 eins og verið hefur en starfsmenn hitaveitunnar sjá einnig um rekstur vatnsveitu og fráveitu sveitarfélagsins.