Umferðaröryggisáætlun fyrir Fljótsdalshérað

Sveitarfélagið Fljótsdalshérað kallar eftir ábendingum frá íbúum sveitarfélagsins vegna gerðar nýrrar umferðaröryggisáætlunar. Íbúar eru hvattir til að taka virkan þátt með því að senda inn ábendingar fyrir 13. janúar 2017 á netfangið kep@vso.is eða móttöku skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir.

Fljótsdalshérað hefur undirritað samning við Samgöngustofu þess efnis að umferðaröryggisáætlun verði gerð fyrir sveitarfélagið. Vinna við áætlunina er hafin og hefur verið skipaður samráðshópur með helstu hagsmunaaðilum sveitarfélagsins og fleiri aðilum tengdum þessu málefni.

Samráðshópinn skipa fulltrúar frá grunnskólum, leikskólum, frístundastarfi, lögreglu, eldri borgurum, Samgöngustofu, Vegagerðinni, almenningssamganga og skipulags- og byggingarfulltrúa. VSÓ Ráðgjöf stýrir verkefninu og sitjur í samráðshóp.

Umferðaröryggisáætlun felur í sér gerð stöðumats á umferðaröryggi sveitarfélags, slysagreiningu, markmiðasetningu, mótun aðgerðaráætlunar og forgangsröðun verkefna. Tilgangur umferðaröryggisáætlunar er að auka vitund forráðamanna sveitarfélaga og íbúa um umferðaröryggi. Virk þátttaka íbúa er talin mjög gagnleg og breitt samráð hagsmunaaðila mikilvægt.

Stefnt er að því að halda íbúafund í vor þar sem helstu niðurstöður umferðaröryggisáætlunarinnar verða kynntar.