Tónlistarskólinn í Selási næsta skólaár

Tónlistarskólinn á Egilsstöðum verður í Selási 20 næsta skólaár. Á bæjarstjórnarfundi þann 18. mars var nýr leigusamningur samþykktur. Einnig var samþykkt að ákvörðun um hvar skólinn eigi að vera í framtíðinni verði tekin samhliða gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.

Þá má benda á að skólastjóri Tónlistarskólans ætlar að taka sér leyfi næsta skólaár og er auglýst eftir tónlistarskólastjóra fyrir það tímabil. Nánari upplýsingar má sjá á vef Fljótsdalshéraðs undir laus störf.