Tónleikar Elínar Ey

Elín Ey heldur tónleika í Egilsstaðakirkju á miðvikudagskvöl.
Elín Ey heldur tónleika í Egilsstaðakirkju á miðvikudagskvöl.

Dagskrá Ormsteitisins hefst með tónleikum Elínar Ey í Egilsstaðakirkju miðvikudaginn 9. ágúst klukkan 20:00. Elín Ey er m.a. þekkt fyrir að vera í hljómsveitinni Sísí Ey ásamt systrum sínum. Hún á ekki langt að sækja hæfileikana en foreldrar hennar eru Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson. Frítt er á tónleikana.