Tjarnarskógur skal hann heita

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs leitaði til íbúa sveitarfélagsins um tillögur að nafni á sameinaðan leikskóla en heitin Tjarnarland og Skógarland verða áfram notuð um starfsstöðvarnar tvær.

Nafnið Tjarnarskógur varð fyrir valinu og þakkar fræðslunefnd fjölmargar góðar og skemmtilegar tillögur sem henni bárust.