Tillögur að deiliskipulögum auglýstar

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs auglýsir tvær tillögur að deiliskipulögum, sú fyrri er fyrir Möðrudal á Fjöllum og sú seinni fyrir flugvallarsvæðið á Egilsstöðum. Sjá má auglýsingarnar hér.

Báðar tillögurnar eru til sýnis á bæjarskrifstofnni Lyngási 12 og á heimasíðu sveitarfélagins „egilsstadir.is“ frá 10.maí til 21. júní 2012. Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með fimmtudagsins 21. júní 2012.