Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæ Egilsstaða

Yfirbragð byggðar horft til austurs
Yfirbragð byggðar horft til austurs

Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi á Fljótsdalshéraði.

Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs þann 18. júní 2020  var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Miðbæ Egilsstaða.

Deiliskipulagið var til kynningar fyrir ári síðan og komu fram ábendingar við deiliskipulagstillögu. Eftir að kynningu lauk hefur verið unnið með hagsmunaaðilum að úrlausnum við ábendingum. 

Við endurskoðun á miðbæjarskipulaginu er unnið áfram með grunnhugmynd sem byggir á gildandi deiliskipulagi frá 2006. Leitast er við að færa skipulagið í átt að vistvæns skipulags og skapa vandaða miðbæjarbyggð. Meiri áhersla er lögð á umferðaröryggi, lækkun hámarkshraða bíla og aukin áhersla á fjölbreytta ferðamáta fyrir gangandi og hjólandi  vegfarenda. Byggðin hefur verið þétt til muna, hlutfall íbúða aukið. Með því að þétta byggðina er verið að stuðla að betri landnýtingu, skapa fjölbreytt og líflegt bæjarumhverfi. Við það aukast rekstrarhagsmunir verslunar og þjónustu innan svæðisins og skapast aðstæður fyrir mannlíf í miðbænum samhliða.

Tillagan er sett fram á
Deiliskipulagsuppdrætti,
Skýringaruppdrætti ásamt
skipulags- og byggingarskilmálum.

Tillagan, með skilmálum, er aðgengileg á vef Fljótsdalshéraðs. Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum rennur út þann 4. ágúst nk. Athugasemdir skal senda í tölvupósti til gunnlaugur@egilsstadir.is og dandy@egilsstadir.is  

f.h. bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
skipulags- og byggingarfulltrúi