Eitt nýtt smit hefur bæst við á Austurlandi frá í gær og þau því sjö talsins í heildina. Hinir smituðu eru allir búsettir á Fljótsdalshéraði.
Í sóttkví eru 202, fjórum fleiri en í gær. Talsvert margir þeirra flugfarþega er komu erlendis frá fyrir hálfum mánuði eða svo eru að ljúka sinni sóttkví. Því má gera ráð fyrir tölur morgundagsins lækki nokkuð frá deginum í dag.
Íslensk erfðagreining, ÍE, stefnir að því í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Austurlands, HSA, að hefja skimun fyrir smiti á Austurlandi með þeim hætti að fólk geti pantað sér tíma í sýnatöku. Það geta allir nema þeir sem eru í sóttkví og börn yngri en eins árs. Stefnt er á að þetta verkefni verði framkvæmt að óbreyttu laugardaginn 4. og sunnudaginn 5. apríl. Bent skal á það strax að bókun í sýnatöku verður ekki í gegnum heilsugæslu HSA heldur með rafrænum hætti á heimasíðu Íslenskrar erfðagreiningar. Skipulagið, þar með talið bókunarleiðbeiningar, verða fljótlega kynntar á heimasíðu sveitarfélaga, á heimasíðu og fésbók HSA og á Austurfrétt.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.