Tilkynning frá aðgerðastjórn 24.apríl

Einn er í einangrun af átta sem smitast hafa af COVID-19 á Austurlandi en sjö er batnað. Þá eru sjö í sóttkví.

 Aðgerðastjórn áréttar að nýjar takmarkanir á samkomum taka gildi 4. maí. Því eru, til þess tíma, enn í gildi takmarkanir við notkun spark- og íþróttavalla, fjöldatakmörkun sem miðar við tuttugu manns, tveggja metra nálægðarmörk og svo framvegis. Breytingar sem verða 4. maí eru tíundaðar í auglýsingu frá heilbrigðisráðuneytinu sem meðal annars má finna hér á vef stjórnarráðsins

 Eru íbúar hvattir til að kynna sér þessar reglur og fylgja í hvívetna þegar þar að kemur, líkt og við höfum lagt okkur fram um að fylgja þeim reglum sem nú eru í gildi. Þannig munum við komast í gegnum þetta saman án bakslags og tryggja á sama tíma að nýjar reglur frá 4. maí nái fram að ganga.