Tilkynning frá aðgerðastjórn 15.apríl

Af þeim átta sem smitast hafa á Austurlandi eru tveir í einangrun. Sex hafa náð bata. Tuttugu eru í sóttkví.
 

Annað – almenn heilbrigðisþjónusta

Það er gleðilegt að nýjum smitum fer mjög fækkandi á landsvísu. Svo virðist sem fyrirbyggjandi aðgerðir af hálfu sóttvarnayfirvalda séu að skila árangri, nokkuð sem ekki síst ber að þakka íslenskum almenningi sem hefur virt sóttvarnatilmæli.
 
Frá byrjun faraldurs hafa sóttvarnayfirvöld og landlæknir ítrekað mikilvægi þess að fólk hætti ekki að leita til heilbrigðiskerfisins hafi það til þess einhverja ástæðu. Aðgerðastjórn telur á þessum tímamótum mikilvægt að taka sérstaklega undir þau orð og bendir þeim sem eiga við heilbrigðisvanda eða vanlíðan að stríða að hringja í sína heilsugæslustöð eða hafa samband í gegnum almenn skilaboð á heilsuvera.is. Einnig má benda á hjálparsíma Rauða krossins 1717 og vaktsíma heilsugæslunnar 1700 utan dagvinnutíma