Tilboðsfrestur framlengdur

Vegna þess hve áður auglýstur tilboðstími var knappur og auk þess á almennum sumarleyfistíma starfsfólks sveitarfélagsins og hjá bjóðendum, hefur verið ákveðið að framlengja tilboðsfrest vegna tölvukerfa Fljótsdalshéraðs (Útboð FH2012-06-25) til og með 15. ágúst 2012. Allar viðmiðunardagsetningar framlengjast þar af leiðandi með eftirfarandi hætti:

• Fyrirspurnartíma lýkur 8. ágúst;
• Svarfrestur rennur út 12. ágúst. Öllum fyrirspurnum sem berast fyrir 8. júlí verður svarað fyrir 12. júlí eins og fram kom í upphaflegri auglýsingu. Fyrirspurnum sem berast eftir 8. júlí verður í síðasta lagi svarað 12. ágúst;
• Skilafrestur tilboða er til og með 15. ágúst;
• Opnunartími tilboða er 17. ágúst kl. 13.00.

Allar dagsetningar vegna afhendingar skv. liðum 1.1.5 og 1.1.6 í útboðsgögnum framlengjast þar með um 30 daga.