Til styrktar fötluðum börnum og ungmennum

Jólakúlan í ár er eftir Egil Sæbjörnsson og Jólaóróinn Askasleikir er hannaður af Goddi og Ásta Fann…
Jólakúlan í ár er eftir Egil Sæbjörnsson og Jólaóróinn Askasleikir er hannaður af Goddi og Ásta Fanney Sigurðardóttir yrkir um hann kvæði.

Að venju munu félagar í Soroptimistaklúbbi Austurlands selja kærleikskúlur og jólaóróa frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra nú á aðventunni. Sala þessara muna er árlegt fjáröflunarverkefni Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og fær Soroptimistaklúbbur Austurlands 1000 krónur af andvirði hvers hlutar sem selst hér til stuðnings fötluðum börnum og ungmennum á Austurlandi.

Kúlan í ár er eftir Egil Sæbjörnsson sem var fulltrúi Íslands í Feneyjatvíæringnum og Jólaóróinn Askasleikir er hannaður af Goddi og Ásta Fanney Sigurðardóttir yrkir um hann kvæði.

Soroptimistaklúbbur Austurlands kemur nú að þessu verkefni í 12. sinn og hafa Austfirðingar verið tryggir kaupendur. Ágóðinn er sem fyrr segir notaður í þágu fatlaðra barna og ungmenna á heimaslóðum og hefur hann t.d. verið notaður til tækjakaupa fyrir sjúkraþjálfun og til kaupa á ýmiskonar hjálpartækjum fyrir einstaklinga. Einnig hefur sjóðurinn styrkt einstakling til þátttöku á vetrarólympíuleikum fatlaðra.

Síðastliðin ár hefur ágóðinn runnið til kaupa á lyftu fyrir hreyfihamlaða í sundlaugina á Egilsstöðum. Lyftan er komin upp og nú safnar klúbburinn fyrir kostnaði vegna uppsetningar hennar.

Selt verður í Nettó á Egilsstöðum dagana 6. - 10. desember, í markaðinum í Barra 16.desember, í versluninni Klassík á Egilsstöðum, í Hár.is í Fellabæ og í Kjörbúðinni á Seyðisfirði.

Sölutíminn er nánar auglýstur á heimasíðu klúbbsins: www.saust.is.