Til íbúa Fljótsdalshéraðs

Nú hefur verið tekin upp ný innskráningarleið inn á íbúagátt Fljótsdalshéraðs. Frá og með 1. apríl verður gamla innskráningarleiðin óvirk og er fólk því hvatt til að kynna sér málið inn á heimasíðu Fljótsdalshéraðs, en þar koma fram leiðbeiningar um innskráningu.

Þessi breyting er gerð bæði til að auka öryggi við innskráningu og samræma hana við ýmsar aðrar opinberar stofnanir og er einnig hluti af landsátaki í þessum efnum.