Þrettándagleði Hattar og Fljótsdalshéraðs við Hettuna

Íþróttafólk Hattar 2017
Íþróttafólk Hattar 2017

Hin árlega Þrettándagleði Hattar og Fljótsdalshéraðs fer fram við Hettuna, sunnudaginn 6. janúar. Kyndlaganga leggur af stað frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum kl. 16.00 og verður gengið að Hettuni.  Björgunarsveitin verður með sölu á kyndlum við íþróttahúsið fyrir gönguna og kostar stykkið kr. 1.000. Dagskráin við Hettuna er eftirfarandi:

  • Viðurkenningar íþróttafólks Hattar ársins 2018
  • Afhending starfsmerkja Hattar
  • Flugeldasýning í umsjón Björgunarsveitarinnar á Héraði
  • Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs flytur tónlist.

 

Styrktaraðilar eru Brúnás-Innréttingar, Hitaveita Egilsstaða og Fella og Landsbankinn.