Þorrablótsnefndir á fullu á Héraði

Þorrinn nálgast með þorrablótum með sinni sérstöku matarmenningu, gríni og gleði. Heyrst hefur að á Fljótsdalshéraði verði að venju allnokkur blót. 

Egilsstaðir ríða á vaðið með blóti sem haldinn verður í íþróttamiðstöðinni, á bóndadag, föstudaginn 22. janúar. Forsala miða verður í Egilsstaðaskóla laugardaginn 16. og sunnudaginn 17. janúar frá klukkan 17 til 19. Bent er á að ef keypt er fyrir hópa skal það greitt í einni greiðslu.

Fellablótið fer fram í fjölnotahúsinu í Fellabæ föstudaginn 29. janúar og byrjað verður að selja miða þann 22. í Ráðhúsinu í Fellabæ.

Þorrablót Jökuldælinga og Jökulsárhlíðarmanna verður haldið í Brúarási laugardaginn 13. febrúar.

Laugardaginn 20. febrúar halda Vallamenn og Skriðdælingar sameiginlegt blót á Arnhólsstöðum. Sama dag halda þeir í Hróarstungu sitt blót í Tungubúð.

Þá munu nágrannarnir í Borgarfjarðarhreppi blóta í Fjarðarborg laugardaginn 23. janúar eins og Seyðfirðingar og Eskfirðingar en í Fljótsdalshreppi verður blótað í Végarði laugardaginn 6. febrúar. 
Upplýsingar um önnur þorrablót á Austurlandi liggja ekki fyrir.