Í ár er 10 ára afmæli Þjóðleiks, en Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Á Þjóðleik koma saman leikhópar ungs fólks úr mörgum byggðarlögum Austurlands og sýna leikverk sem samin hafa verið sérstaklega fyrir Þjóðleik.
Að þessu sinni fer Þjóðleikur fram í Sláturhúsinu menningarsetri á Egilsstöðum fimmtudaginn 2. maí.
Hátíðin verður sett klukkan 13 af Ara Matthíassyni Þjóðleikhússtjóra og Stefáni Boga Stefánssyni, forseta bæjarstjórnar, en síðan hefjast leiksýningar.
Í ár taka þátt leikhópar frá Egilsstöðum, Neskaupsstað, Reyðarfirði og Seyðisfirði, í allt 5 leikhópar, sem sýna verkin á tveim leiksviðum í Sláturhúsinu. Hver hópur sýnir tvisvar.
Verkin sem sýnd verða í ár eru Tjaldið eftir Hallgrím Helgason, Eftir lífið eftir Sigtrygg Magnason og Dúkkulísa eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Backmann.
Allir eru velkomnir á leiksýningarnar og er aðgangur gjaldfrjáls.
Þjóðleikur á Facebook https://www.facebook.com/events/403629383807074/
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.