Þetta vilja börnin sjá!

Sunnudaginn 15. september 2019 opnaði sýningin Þetta vilja börnin sjá! í Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs - Sláturhúsi. Á sýningunni er hægt að skoða myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem komu út á árinu 2018. Sýningin í Sláturhúsinu stendur til 15. október og er opin á milli 10:00 og 15:00 alla virka daga. Dagana 16.-18. september er tekið á móti tæplega 300 leik- og grunnskólabörnum af Fljótsdalshéraði sem oft vinna áfram í skólunum að hugmyndum tengdum sýningunni.

Á sýningunni má meðal annars sjá teikningar Ryoko Tamura sem myndskreytti Stelpan sem týndi bróður sínum í ruslinu, teikningar eftir Sigrúnu Eldjárn og Rán Flygenring, sem myndskreytti meðal annars bækurnar Fuglar og Skarphéðinn Dungal. Sýningin í ár er sú sautjánda frá upphafi en Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs setur hana nú upp í áttunda sinn.

Sýningin er vel til þess fallin að sýna þá fjölbreytni og fagmennsku sem er að finna í íslenskri barnabókaútgáfu. Að þessu sinni taka nítján teiknarar þátt í sýningunni: Anna Lísa Björnsdóttir, Arnór Kárason, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Elsa Nielsen, Freydís Kristjánsdóttir, Hafsteinn Hafsteinsson, Heiða Rafnsdóttir, Heiða Björk Norðfjörð, Ingi Jensson, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Martine Jaspers-Versluijs, Rán Flygenring, Ryoko Tamura, Sigmundur B. Þorgeirsson, Sigrún Eldjárn, Svafa Björg Einarsdóttir, Þórarinn Már Baldursson