Í sumar verður starfræktur vinnuskóli á vegum Fljótsdalshéraðs. Við ráðningar í stöður flokkstjóra er litið til þess hvort umsækjendur:
? Gefi leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr.70/2007 og uppfylli þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
? Hafi góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra hópi af ungu fólki.
? Hafi reynslu af, og áhuga á, að vinna með og fræða ungt fólk.
? Séu reyklausir.
? Séu hæfir til að vera nemendum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
? Hafi bílpróf.
? Séu sjálfstæðir, skipulagðir og sýni frumkvæði í starfi.
? Séu tuttugu ára eða eldri.
Starf flokkstjóra felst í að stjórna starfi hóps nemenda vinnuskólans, leiðbeina nemendum og fræða þá um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu, halda skýrslu um mætingar og ástundun nemenda og vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda í vinnuskólanum.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 4 700 700 og á freyr@egilsstadir.is.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofum sveitarfélagins og á heimasíðunni www.fljotsdalsherad.is. Umsóknum skal skila á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12 eða á netfangið freyr@egilsstadir.is.
Umsóknarfrestur er til 22. mars 2014.
Verkefnastjóri umhverfismála
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.