Sumarleyfi bæjarstjórnar 2020 og sumarlokun bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs

Bæjarstjórn hefur samþykkt að sumarleyfi bæjarstjórnar 2020 verði frá fundi bæjarstjórnar 18. júní og til og með 11. ágúst og mun bæjarráð fara með fullnaðarafgreiðsluheimild mála þann tíma, sbr. 5. mgr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarfrí verður 19. ágúst.

Jafnframt hefur bæjarstjórn samþykkt að sumarlokun bæjarskrifstofu 2020 verði frá og með mánudeginum 20. júlí til og með föstudeginum 31. júlí.
Á umræddum lokunartíma verður þó svarað í síma bæjarskrifstofunnar 4700700 á hefðbundnum opnunartíma og reynt að bregðast við nauðsynlegustu erindum. Starfsemi verður þó í algeru lágmarki, vegna sumarleyfa starfsfólks.