Sumarfjör á Héraði 2015

Upplýsingar um tómstunda- og íþróttastarf og námskeið ýmis konar sem haldin verða í sumar fyrir börn og unglinga, eru nú aðgengilegar á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Eins og áður er margt í boði, þannig að flestir ættu að finna eitthvað við hæfi í sumar.

Með því að smella á borðann „Sumarfjör 2015“ hér á heimasíðu sveitarfélagsins er hægt að nálgast yfirlit yfir það sem í boði er, eða með því að smella hér.