Sumarfjör á Héraði

Fyrir stuttu var bæklingi dreift í öll hús á Fljótsdalshéraði með upplýsingum um mikinn fjölda námskeiða og afþreyingarstarfsemi fyrir börn og unglinga. Fjölbreytileiki einkennir framboðið en meðal þess sem er í boði má nefna... knattspyrnu, frjálsar íþróttir, fimleika, dansnámskeið, golfnámskeið, skátastarf, leiklistarnámskeið, listnámskeið, tónsmiðju, námskeið í umgengni við hesta, smíðavelli og skólagarða ofl. Hér er að finna úrval þeirra námskeiða sem auglýst voru í bæklingnum Sumarfjör á Héraði 2007.