Styttist í nýja vatnið

Í þessari viku er að ljúka vinnu við lagningu kaldavatnslagnar frá dæluhúsi við Köldukvísl á Eyvindardal að vatnstanki á Selöxl, á Egilsstöðum. Þá hefst vinna við þrýstiprófun á lögninni og síðan verður hún skoluð út og hreinsuð áður en vatni verður hleypt í gegn um hana inn í vatnstankinn. Búið er að reisa dæluhúsið við Köldukvísl og verið er að einangra það og fullgera. Síðan taka við tengingar  við rafmagn og frágangur á rafbúnaði og dælum. Verkið er á áætlun og stefnt að því að þéttbýlin á Egilsstöðum og Fellabæ  fái vatn úr nýja vatnsbólinu fyrir jólin.  Fyrirhugað er að draga nýja vatnslögn í gömlu asbestlögnina frá Blómabæ að vatnsbóli Egilsstaða. Þá verður síðasta  asbestlögnin í veitukerfinu aflögð .  Að því loknu  verður hægt að tengja Fellabæinn við nýja vatnsbólið. Jólabaðvatnið ætti því ekki að verða neitt slor, blanda af besta hitaveituvatni landsins og vatni úr köldum og tærum fjallalindum Köldukvíslar.