Styttist í jasshátíðina

Nú styttist óðum í tuttugustu Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi.  En hátíðin mun fara fram dagana 27. – 30. júní.  Í tilefni af 20 ára afmæli hátíðarinnar verður dagsskrá hennar glæsilegri en nokkru sinni fyrr.

Þá hefur formi hátíðarinnar verið breytt lítillega til að tryggja hana enn frekar í sessi sem elstu og skemmtilegustu jasshátíðar landsins.  Samkvæmt venju verða tónleikar frá miðvikudegi til laugardags á Egilsstöðum, í Neskaupstað, á Seyðisfirði. Einnig bætist Eskifjörður í hópinn og reynt er að höfða til allra með frábærri tónlist. Nú þegar hafa borist um á annan tug umsókna Tónlistarmönum viðsvegar að og er greinilegt að mikill áhugi er fyrir JEA 2007. 

Hátíðin verður prýdd frábærum listamönnum sem hafa það að markmiði að skemmta hátíðargestum.  Stuðsveitin Jagúar heldur uppi stuðinu á laugardagskvöld.  Þeir félagar eru að ljúka við uppökur á nýjum diski sem kemur út í júní.  Þá er einnig ánægjulegt að geta kynnt til leiks hinn ótrúlega James Carter, en hann er einn magnaðasti saxófónleikari heimsins í dag.  James Carter hefur verið valinn besti baritone-saxófónleikari heims 5 ár í röð af lesendum hins virta DownBeat tímarits og var einnig númer þrjú í vali á besta sópran-saxófónleikara í sama tímariti í fyrra.  Komið hafa fyrirspurnir um tónleika Carters frá ýmsum löndum og er mikill áhugi fyrir komu hans á JEA 2007. 

Einnig mun hin frábæra blúsdrottning Deitra Farr syngja á jasshátíðinni. En hún hefur áður komið fram á Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi en það var árið 1992 og muna margir eftir henni síðan þá. 

Með þeim Carter og Farr verður frábær bræðingur bestu tónlistarmanna landsins.  Þetta er hljómsveitin Riot en hana skipa snillingarnir Björn Thoroddsen, Halldór Bragason, Jón Ólafsson, Jón Rafnsson og Ásgeir Óskarsson.  Einnig mun Andrea Gylfadóttir bætast í hópinn á Gospeltónleikum í Eskifjarðarkirkju og þar mun Gospelkór Fjarðabyggðar undir stjórn Daníels Arasonar syngja með.

Narodna Musica er hljómsveit sem leikur búlgarska þjóðlagatónlist. Þessa sveit skipa búlgarskir og íslenskir tónlistarmenn með Hauk Gröndal í fararbroddi.  Hrafnaspark flytur tónlist í anda Django Reinhart.  Ásgeir Ásgeirsson gítaristi og hljómsveit hans flytja tónlist eftir Lester Young.  Dúettinn The Pich Fork Rebellion heiðrar minningu Ellu Fizgerald,
Söru Vaughan og Ninu Simone.  Við fáum heimsókn frá Hollandi en það er hljómsveitin Sean Walsh Band og leika þeir rokkættaðan blús af bestu gerð.  Tónlistarmenn af Austurlandi skipa einnig veglegan sess á hátíðinn eins og fyrri ár undir merkjum Djasssmiðju Austurlands.  Einnig leikur Blúsbrot Garðars Harðar á hátíðinni en Garðar hefur verið viðloðandi flestar hátíðirnar tuttugu  og er sannkallaður blúskongur Austurlands.   Einnig munu koma fram ungir og efnilegir tónlistarmenn af Austurlandi.   

Hátíðin mun fara fram með hefðbundnu sniði, það er að bjóða uppá skemmtilega tónleika öll kvöldin auk Gospeltónleikanna. En á laugardag verður blásið til afmælisveislu og landsmönnum öllum boðið til fagnaðarins.  Slegið verður upp tjaldi á góðum stað á Egilsstöðum þar sem  boðið verður uppá tónlist og fjör allan daginn.  Það verður sannkölluð “carnival” stemning á Jasshátíð Egilssaða á Austurlandi dagana 27. – 30. júní.

Dagskrá Jasshátíðar Egilsstaða á Austurlandi má finna á www.jea.is