Strandamaðurinn sterki á RÚV

Fjallað var um Egilsstaðabúann og kúluvarparann Hrein Halldórsson í þættinum 360 gráður á RÚV í gærkvöld. 360 gráður er íþrótta- og mannlífsþáttur þar sem fjallað er um íþróttalíf landsmanna og rifjuð upp gömul atvik úr íþróttasögunni.

Í gær voru rifjuð upp afrek Strandamannsins sterka og rætt við hann um lífið og tilveruna. Þátturinn er endurtekin í Sjónvarpinu í dag, 15. febrúar klukkan 15.20, og einnig er hægt að sjá hann í Sarpinum á vef RÚV eða hér.