Strætóskýli sett upp á Egilsstöðum

Nýverið hafa verið  sett upp strætóskýli til að skýla fólki fyrir veðri og vindum í vetur. Tvö skýli hafa verið sett upp á Egilsstöðum og eitt í Fellabæ.  Ný áætlun, vetraráætlun,  er gengin í garð hjá áætlunarbílum á Héraði. Upplýsingar um almenningssamgöngur má sjá hér.

Myndin sem fylgir fréttinni er af Páli Sigvaldasyni bæjarfulltrúa í einu af nýju skýlunum.