Stórval í Egilsstaðakirkju

Kammersveitin Stelkur flytur verkið STÓRVAL eftir Charles Ross sunnudaginn 12. febrúar klukkan 20:30 í Egilsstaðakirkju.

Verkið sem var frumflutt í Hörpu í Reykjavík á Myrkum músikdögumer um 60 mínútur í flutningi. 

Kammersveitina skipa þau Berglind Halldórsdóttir, Charles Ross, Eyrún Eggertsdóttir, Gillian Haworth, Hildur Þórðardóttir, Sunčana Slamnig og Øystein Magnús Gjerde.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.