- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Í dag, 4. mars, hefjast lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar sem flest allir grunnskólar landsins eru þátttakendur í. Á Austurlandi fara lokahátíðir keppninnar fram í íþróttahúsi á Hallormsstaðaskóla þriðjudaginn 16. mars kl. 17.00, í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar mánudaginn 15. mars kl. 17.00 og í Hafnarkirkju miðvikudaginn 17. mars kl. 14.00. Á þessum stöðum koma fram þeir nemendur sem unnið hafa keppnina í hverjum skóla fyrir sig.
Í Fellaskóla fer upplestrarkeppnin meðal nemenda skólans fram í dag, fimmtudag og hefst hún kl. 13.15. Allir eru velkomnir á upplestrarkeppnirnar þar.
Stóra upplestrarkeppnin er fyrir 7. bekk grunnskólanna og er markmið hennar að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriði og forðast skyldi að einblína á sigur. Lögð er hins vegar áhersla á að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stefnt er að því að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni. Þetta á ekki síst við um lokahátíð keppninnar.
Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu 16. nóvember, og lýkur í mars með því að valdir eru þrír bestu upplesarar í hverju byggðarlagi, eða í umdæmi hverrar skólaskrifstofu. Keppnin skiptist í tvo hluta, ræktunarhluta og keppnishluta.
Ræktunarhlutinn er sá hluti upplestrarkeppninnar sem mestu máli skiptir. Hann miðast við tímabilið frá degi íslenskrar tungu fram í lok febrúar. Á þessu tímabili er lögð sérstök rækt við vandaðan upplestur og framburð í hverjum bekk. Lögð hefur verið áhersla á að íslensku máli væri jafnan nokkur sómi sýndur við upphaf keppninnar í 7. bekk, og þá gjarnan fengnir verðlaunahafar frá fyrra ári til að lesa upp. Þær vikur í skólunum, sem helgaðar eru vönduðum upplestri, eru alfarið í höndum kennara.
Hátíðarhlutinn er það sem kalla mætti hina eiginlegu keppni. Hann er í tvennu lagi. Annars vegar er upplestrarhátíð í hverjum skóla í lok febrúar þar sem tveir til þrír nem¬endur eru valdir til áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans. Hins vegar er lokahátíð í héraði, sem haldin er í góðum samkomusal í byggðarlaginu í mars. Þar koma saman fulltrúar skólanna í héraðinu, einn, tveir eða þrír úr hverjum skóla, og lesa ljóð og laust mál sem þeir hafa undirbúið vandlega.
Hafa ber í huga að keppnin er í raun aðeins formsatriði, nokkurs konar staðfesting á þeim árangri sem náðst hefur í skólastarfinu, og því miklu meir í ætt við uppskeruhátíð. Ekki skiptir máli hver sigrar, heldur það að tekist hafi að virkja nemendur til að vanda upplestur sinn um veturinn.