Stofnanir Fljótsdalshéraðs lokaðar eftir hádegi 19. júní

Starfsmönnum Fljótsdalshéraðs verður gefið frí eftir hádegi föstudaginn 19. júní til að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Tillagan, sem kom frá bæjarráði, var samþykkt samhljóða með handauppréttingu á síðasta bæjarstjórnarfundi.

Stofnanir sveitarfélagsins verða lokaðar frá hádegi 19. júní en þó verður tryggt að þjónusta er varðar öryggi og neyðarþjónustu verður veitt.