Stefán Berg íþróttamaður Ássins 2012

Á þrettándagleði UMF Ássins sem haldinn var í samstarfi við Brúarásskóla og fleiri fengu 28  krakkar og unglingar viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í starfi félagsins. Einnig var endurvakin sú hefð að heiðra íþróttamann ársins, en það var síðast gert árið 2003. Auk þess voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2012.


Íþróttamaður ársins er Stefán Berg Ragnarsson. Hann hlaut eignabikar og fékk til varðveislu í eitt ár farandbikar.

Viðurkenningar fyrir góðan árangur fengu: Hólmar Logi Ragnarsson, Alexander Ingi Gunnþórsson og Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar.