Stafdalur: Námskeið fyrir börn hefjast 10. janúar

Nægur snjór er á skíðasvæðinu í Stafdal og er vetrarstarfið að komast í gang eftir jólin. Opnunartími veltur þó á veðri hverju sinni. Aðstæður má sjá á heimasíðunni eða fá upplýsingar í síma: 8781160

Stefnt er að því að starfsemi Krílaskólans og Ævintýraskólans hefjist 10. janúar. Í Krílaskóla eru krakkar sem eru að ná tökum á skíðamennskunni, en lágmarksaldur er 3 ára. Krílaskólinn fer alfarið fram í barnalyftunni en þar eru lagðar brautir og þrautir til að auka færni krakkanna á skíðum. Markmiðið í Krílaskólanum er að koma krökkum af stað í skíðamennskunni og kynna fyrir þeim þessa skemmtilegu íþrótt.

Í Ævintýraskóla eru krakkar á öllum aldri sem eru orðnir nokkuð sjálfbjarga á skíðum og geta bjargað sér sjálfir í stóru lyftunni og brekkunni. Lágmarksaldur í Ævintýraskóla er 4 ára. Markmiðið í Ævintýraskólanum er að allir hafi gaman af skíðmennskunni og verði betri skíðamenn. Í vetrarlok eiga allir að hafa öðlast betri skíðafærni og vera farnir að tileinka sér grunntækni í skíðaíþróttinni. Krakkar geta að sjálfsögðu flust úr krílaskóla yfir í Ævintýraskóla hafi þeir öðlast færni til. Þjálfarar í Krílaskóla og Ævintýraskóla eru Heiður Vigfúsdóttir og Unnur Óskarsdóttir.

Þjálfarar á æfingum í vetur eru Halldór Halldórsson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Sif Guðmundsdóttir og Sigríður Þorláksdóttir Baxter. Æfingahóp er í megindráttum skipt í tvo hópa eftir aldri og getu. Í hóp A eru yngstu æfingakrakkarnir og krakkar sem eru að hefja æfingar á skíðum. Á æfingum hjá hóp A er lögð áhersla á leik og þjálfun í tækniskíðun, en einnig er farið í brautir. Allir í hópnum verða að geta bjargað sér í stóru lyftunni og brekkunum þar. Lágmarksaldur á æfingum er 6 ára. Hópur B samanstendur af krökkum sem hafa æft markvisst skíði í a.m.k. 1-2 ár og hafa náð færni til að fylgja hópnum eftir. Hópnum verður skipt niður í minni hópa eftir aldri og getu.
Rúta fer frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum þriðju-, miðviku- og fimmtudaga. Mæting í rútu er kl. 16.20. Takmörkuð sæti eru í rútunni og ef hún er fullsetin þurfa foreldrar að skiptast á að keyra.

Athugið að börn eru á skíðum á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Nauðsynlegt er að foreldrar yngri barna og þeirra sem eru að byrja séu á staðnum meðan æfingar fara fram. Skylt er að nota hjálm við æfingar.

Verðskrá:
Krílaskóli/Ævintýraskóli 12.000 - vetrargjald.
Krílaskóli/Ævintýraskóli 2.000- stakur tími.
Hópur A - 6 klst á viku 28.000
Hópur B – 9 klst á viku 31.000
25% afsláttur fyrir annað barn (yngra) og 40% afsláttur fyrir þriðja barn, fjórða barn frítt.
Lyftukort eru innifalin í æfingagjöldum.

Séu óskir hjá iðkendum að mæta á færri æfingar í viku en gert er ráð fyrir í æfingatöflu mun SKÍS verða við þeirri ósk að ákveðnu marki en iðkandi þarf að láta vita við skráningu á hvaða dögum hann mæti á æfingar. Vinsamlega hafið samband við Hugrúnu gjaldkera með frekari útfærslu, litluskogar12@simnet.is
Æfingar eru hafnar, en Krílaskóli og Ævintýraskóli hefjast 10. janúar.

Skráning á æfingar og kríla- og ævintýraskóla fer fram á netfangið namskeid@stafdalur.is

Allar nánari upplýsingar um skíðasvæðið eru á www.stafdalur.is