- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Fyrir liggja drög að Sóknaráætlun Austurlands 2015-2019, frá Austurbrú, þar sem óskað er eftir umsögn eða athugasemdum um drögin fyrir 15. júní n.k.
Drögin voru til umfjöllunar á fundi bæjarráðs Fljótsdalshéraðs 8. júní og gerði bæjarráð eftirfarandi bókun um málið:
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs mun ekki taka saman sérstakar athugasemdir við sóknaráætlunina, en hvetur íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér drögin og gera þá athugasemdir ef ástæða þykir til. Drögin er að finna á heimasíðu Austurbrúar, http://www.austurbru.is/