Smá breytingar á dagskrá laugardagsins vegna veðurs

Við látum ekki veðrið á okkur fá í dag, enda stefnir í að það stytti upp þegar líður á daginn. Nýbúakaffi verður þó fært inn í Gistihúsið. Grillað verður á Vilhjálmsvelli á áður auglýstum tíma, fyrir leik Hattar og Sindra. Hoppukastalar verða ekki vegna veðurs.

Hverfagrill verða á áður auglýstum stöðum og Karnivalgangan leggur af stað á slaginu 19:00.

Mætum hress og kát í regngallanum, ef þarf, og skemmtum okkur saman.