- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Á fundi bæjarstjórnar 20.08.2014 voru samþykktar skipulagslýsingar, sem tilgreindar eru hér.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Fljótsdalshéraðs auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar geta kynnt sér skipulagslýsingarnar skv. ákv. gr. 4.2 og 5.2 í skipulagsreglugerð.
Hvammur 2: Skipulagslýsing dagsett 11. ágúst 2014 fyrir breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 og gerð deiliskipulags fyrir frístundabyggð í landi Hvamms 2.
Eyvindará II: Skipulagslýsing dagsett 11. ágúst 2014 fyrir breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 í samræmi við gr. 4.2 og 5.2 í skipulagsreglugerð. Breytingin felur það í sér að gisting verður ekki bundin við smáhýsi í skilmálunum.
Kaldá 1: Skipulagslýsing skipulagsáforma um deiliskipulag fyrir frístundabyggð á Kaldá 1.
Stóra Sandfell 3. 4 og 5: Skipulagslýsing skipulagsáforma um deiliskipulag fyrir tjaldsvæði og byggingar því tengdu á Stóra Sandfelli 3, 4 og 5.
Lýsingarnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs, að Lyngási 12, Egilsstöðum mánudaginn 1. september 2014 frá kl. 8:00 til kl. 16:00. Lýsingin verður einnig á heimasíðu sveitarfélagsins egilsstadir.is
Íbúum er með þessu gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum við lýsingarnar.
Ábendingar, ef einhverjar eru, óskast sendar skipulags- og byggingarfulltrúa, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir, eigi síðar en mánudaginn 22. september 2014, merkt Skipulagslýsingar.
Tillaga að breytingu á Aðalskiplagi Fljótsdalshéraðs 2008 2028, og tillögum að deiliskipulögunum verður svo til sýnis á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs, að Lyngási 12, Egilsstöðum mánudaginn 29. september 2014 frá kl. 8:00 til kl. 16:00 og á heimasíðu sveitarfélagsins egilsstadir.is.
Ábendingar vegna skipulagstillagnanna, ef einhverjar eru óskast sendar Skipulags- og byggingarfulltrúa, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir, eigi síðar en fimmtudaginn 16. október 2014, merkt Skipulagstillögur.