Skapandi sumarstörf á Fljótsdalshéraði og í Fjarðabyggð

Sveitarfélögin Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað leita að ungu fólki sem fætt er á árunum 1995 til 2003 til að taka þátt í skapandi starfi í allt að tíu vikur á tímabilinu 1. júní til 28. ágúst 2020. 

Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga og hópa sem hafa áhuga á að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélögin lífi með listrænum og skapandi uppákomum. Starfið hentar fólki með fjölbreyttan áhuga, t.d. á tónlist, myndlist, sviðlistum og kvikmyndagerð.

Starfið verður mótað að áhugasviði þátttakenda, en verkefnin þurfa að uppfylla ákveðna skapandi þjónustu við samfélögin, til dæmis að koma fram við ýmis tilefni í byggðakjörnunum eftir því sem tími og aðstæður leyfa.

Gert er ráð fyrir því þátttakendur starfi að mestu leiti sjálfstætt en fái leiðsögn frá verkefnisstjóra hópsins, Emelíu Antonsdóttur Crivello.

Umsækjendur skila inn kynningarbréfi um sig og áhugasvið sín. Eins hugmyndum að verkefnum sem hægt er að vinna. Við val á umsækjendum verður tekið tillit til reynslu umsækjenda, sýnileika og frumleika hugmynda, fjölbreytni, kynjahlutfalls umsækjenda, gæði umsókna o.fl.

Allt að 10 ungmenni fái tækifæri til að vinna skapandi sumarstörf í ár og eru bæði einstaklingar og hópar hvattir til að sækja um.

Athugið að Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað standa saman að skapandi sumarstörfum 2020 og því geta hópar verið skipaðir fólki úr báðum sveitarfélögum.

Hægt er að sækja um skapandi sumarstörf á vefsíðum Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs

Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2020.

Nánari upplýsingar veitir Emelía Antonsdóttir Crivello - emeliaantonsdottir@gmail.com