Skák: Vondi úlfurinn sigraði

Sigursveitin Vondi úlfurinn frá Egilsstaðaskóla tekur við bikar úr hendi Sverris skólastjóra í Fella…
Sigursveitin Vondi úlfurinn frá Egilsstaðaskóla tekur við bikar úr hendi Sverris skólastjóra í Fellaskóla

Merki Heilsueflandi samfélags   Sveitakeppni grunnskóla Fljótsdalshéraðs og Lionsklúbbsins Múla fór fram í Egilsstaðaskóla fimmtudaginn 12. október.
Alls tóku 17 sveitir frá skólunum þremur þátt í keppninni en hver sveit var skipuð 4 þátttakendum.

Fyrirkomulagið var þannig að aðeins ein sveit frá hverjum skóla átti kost á vinningssæti og varð röðin þannig að í þriðja sæti lenti sveitin Ás frá Brúarásskóla, í öðru sæti varð sveitin Gulur frá Fellaskóla en sigursveitin kom frá Egilsstaðaskóla og bar nafnið Vondi úlfurinn.

Lionsklúbburinn Múli lagði til vegleg verðlaun en yfirumsjón sveitakeppninnar var í höndum Sverris Gestssonar, skólastjóra í Fellaskóla.