Sjúk ást í Egilsstaðaskóla

í Egilsstaðaskóla verður fræðslufyrirlestur fyrir foreldra allra barna á Héraði um verkefni Stígamót…
í Egilsstaðaskóla verður fræðslufyrirlestur fyrir foreldra allra barna á Héraði um verkefni Stígamóta "Sjúk ást"

Mánudaginn 9. apríl klukkan 20:00 verður fræðslufyrirlestur fyrir foreldra í Egilsstaðaskóla. Sjúk ást er verkefni á vegum Stígamóta og miðar að því að fræða ungmenni um heilbrigð og óheilbrigð sambönd og samskipti og ofbeldi af ýmsu tagi.

Í fræðslunni fá foreldrar tæki og tól til að ræða málefnið við sína unglinga, en kveikjan að verkefninu var sú að til Stígamóta kemur gjarnan ungt fólk sem hefur verið í ofbeldissambandi á unglingsaldri þar sem alvarlegt andlegt og kynferðislegt ofbeldi átti sér stað.

Fyrirlesturinn er fyrir alla foreldra barna á Héraði, en hann hentar sérstaklega foreldrum barna og unglinga frá 6. bekk og upp úr.

Hægt er að skoða heimasíðu verkefnsins á sjukast.is.