Sjáumst í myrkrinu!

Myndin er af vef Pixabay.com
Myndin er af vef Pixabay.com

Nú þegar farið er að dimma á kvöldin er bráðnauðsynlegt að huga að endurskinsmerkjum, bæði fyrir börn og fullorðna. Í myrkri sjást gangandi, hlaupandi og hjólandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa þau fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum.

Jafnframt er minnt á að ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni þá eiga reiðhjól að vera með ljós að framan, hvítt eða gult og rautt ljós að aftan. Og fyrir hjólreiðamenn og aðra hraðskreiða er endurskinsvesti góður öryggisbúnaður.

Dýrin þurfa líka að sjást og hægt er að fá endurskinsmerki á hunda- og kattaólar og sjálfsagt er að bregða sérstökum endurskinsborðum um fætur hestsins þegar farið er í reiðtúr.

Auðvelt ætti að vera að finna endurskin við hæfi, því það eru til margar gerðir og stærðir eins og endurskinsvesti, hangandi merki, klemmur og límmerki. Endurskinsmerki fást víða, t.d. í lyfjaverslunum og á bensínstöðvum, og má stundum fá frítt hjá tryggingfyrirtækjum og bönkum. Þá fást borðar til að sauma á flíkur – og endurskinsgarn til að prjóna í húfur og vetlinga.

Ekki vera ósýnileg/ur í myrkrinu!